bigginn.bloggar.is
Nýr bíll og alles....Birgir Marteinsson
Eins og staðan er núna á ég tvö gjafabréf með Icelandair, hvort um sig gildir fyrir tvo til hvaða áfangastaðar sem er innan Evrópu.
Annað gjafabréfið fékk ég með bíl sem ég keypti um daginn og hitt fékk ég svo óvænt sent í pósti í dag. Með því var bréf, undirritað af forstjóra Toyota þar sem hann þakkar þeim sem hafa unnið mikið að undanförnu vel unnin störf og vill sýna þakklæti sitt með þessum hætti!!
Já, það er alls ekki slæmt að starfa hjá Toyota
Nú veit ég að margir gera tilkall til þessara flugmiða og þykjast eiga e-ð inni hjá mér (sem er jú alveg rétt). ég væri alveg til í að bjóða ykkur öllum út ef út í það er farið, eða kannski ekki alveg öllum (Steingrímur Njálsson)
Ég get notað þessi gjafabréf upp í Suður Ameríkuferðina mína eftir áramót, svo að ég held að ég geri það bara, þá þarf enginn að verða sár, bara allir hoppand ánægðir.
Svo líst mér helvíti vel á að Ösp sé hætt við að fara út um jólin, það þýðir auðvitað bara ískaldur jólabjór, rauðvín, piparkökur og spil spil og spil á Stokkseyrinni góðu á milli þess sem maður kíkir á Drauga
En hvað um það... næstu helgi verður ball á Draugabarnum (as usual) og allir þeir sem hafa vit í sínum kolli mæta, því flestum ætti að vera það orðið ljóst hvar skemmtilegast er að djamma!
Sé ykkur þar... adios amigos!
p.s. svo má alltaf skella sér í heimsókn til mín í Hléskóga!
Fólk í fréttumBirgir Marteinsson
Það fólk sem birtist á skjám landsmanna í fréttum og fréttatengdum þáttum er oft á tíðum afspyrnu leiðinlegt, og það sem verra er einstaklega illa gefið og ljótt.
(leiðinlegur+heimskur+ljótur=no good)
Ekki ætla ég að nefna nein nöfn (þá verð ég væntanlega kærður af ofstækisfullu vinstra pakki fyrir meiðyrði eða e-ð álíka) en þetta hefur svo bersýnilega komið í ljós undanfarið eftir að umræðan um REI og Orkuveituna hófust.
Endalusar upphrópanir og leiðindi vinstri skrýlsins í borginni er með ólíkindum, það sem kemur svo mest á óvart er hvað fjölmiðlar ganga á eftir þessum hryðjuverkamönnum og apa upp vitleysuna sem þetta annars ágæta fólk lætur út úr sér. (þetta fólk er örugglega ágætt í einhverju, t.a.m. moka skít, því enginn er alslæmur)
Sem betur fer er ég líka ekki tengdur moggablogginu ens og ég var að hugsa um að gera á tímabili, því ekki vil ég láta bendla mig við þann sora sem þar á sér stað á hverjum degi. Fólk sem virðist hafa allan daginn til að blogga um einhverjar fréttir sem það hefur ekki hundsvit á getur alveg eins verið út á vinnumarkaðnum. Sá t.a.m. að ritara vantar hjá tannlækninum í Mjóddinni! Þetta fólk getur a.m.k. varla verið með liðagigt í puttunum, eða því á ég erfitt með að trúa!
Útvarp er frábær miðill fyrir ljótt, heimskt og leiðinlegt fólk. Þá þarf það ekki að vera að þvælast fyrir okkur sem borgum stef-gjöldin og svo er svo einfalt að lækka bara þegar það byrjar að röfla um e-ð sem það hefur ekki blauta drullu vit á.
Og svo tekur moggabloggskórinn undir!
ARGASTA.........................................
VÁ! EN MERKILEGTBirgir Marteinsson
Seðlabanki Tékklands samþykkir kaup Straums í Wood & Company
Seðlabanki Tékklands hefur samþykkt kaup Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. á 50% hlut í tékkneska fjárfestingabankanum Wood & Company. Öll skilyrði kaupanna eru nú uppfyllt og er stefnt að því að ljúka þeim á næstu dögum, samkvæmt tilkynningu frá Straumi.
Merkilegra þykir mér að ég fjárfesti í ágætu epli í morgun. Var eplið grænt, en þó var á því rauð sleikja sem gerði eplið girnilegra en ella.
Af stórum og smáum hlutumBirgir Marteinsson
Í gærkvöldi var skundað út í sveit á....
Peugeot Boxer....
______________________________________________________
Loksins er íbúðin smollin saman, svona nánast. Við náðum í ísskápinn í gærkvöldi, nokkrir stólar og dýna fengu einnig að fljóta með að ógleymdum strokuföngunum.
Á leiðinni heim, þ.e. í bæinn vorum við stoppuð tvisvar af löggunni sem leituðu að strokuföngunum. U.þ.b. 50% af vakthæfandi löggum í landinu stoppuðu okkur s.s. í gær. Gaurinn auðvitað ekki með ökuskírteini, (það er löngu glatað og tröllum gefið) sem kom reyndar ekki að sök þar sem í hvorugt skiptið var ég beðinn um að sýna það!
Magnaður skítur!
En ef þið eruð svöng þá komið þið bara að Hléskógum 4. Nóg til að bíta og brenna
Biggi
Einu sinni var land sem hét Ísland....Birgir Marteinsson
....og þar rigndi mánuðum saman, endaði svo með því, eftir að jöklarnir bráðnuðu að litla Ísland sökk í sæ. Þá tóku eyjaskeggjar sig til og fluttu til Danmerkur, enda er það land nýjasta nýlenda Frónverja.
Í kjölfarið koma Ný-dönsk með comback, með lagið sitt "Hjálpaðu mér upp"
____________________________________________________
En hvað um það.
Ný vinnuvika hafin eftir góða helgi og get ég ekki beðið eftir næstu helgi þar sem Hersir ætlar að djamma af sér skóna á föstudaginn og gleði að Hléskógum 4 á laugardaginn... fríhelgi og læti!
Biggi
AllamallaBirgir Marteinsson
Elska fólk sem vill fá allt fyrir ekkert. Kaupa notaða hluti en vilja samt hafa þá eins og nýja... snilldarlið

En hvað haldið þið svo... Hillary í botox? Þetta líst mér á, allt annað að sjá kellinguna. Nú massar hún þessari útnefningu Demókrataflokksins!
Megi fleiri hrukkudósir taka þennan skörung til fyrirmyndar...
Go Hillary og botox!
Lítið annars að frétta af mér þessa dagana. Nóg að gera í vinnunni og mér skilst að næsta helgi endi í einhverju tómu tjóni þar sem heimsreisufararnir úr S-bekknum ætla að halda einhvern fögnuð. Og við fögnum því auðvitað að þeir séu að fara.
p.s. Okkur Hoffu datt eitt snjallræði í hug, þannig að takið laugardaginn 6. október frá!
Meira síðar...
Ţvottavélin góđaBirgir Marteinsson
Ein pæling, af hverju eru umferðarljósin ekki samstillt í borginni? Svo væla menn allan daginn yfir því að umferðarteppur myndist, eins og það komi e-ð á óvart?Aðeins að líta sér nær
Er farinn að þvo!



